Ríðum, ríðum og rekum yfir sandinn, rennur sól á bak við Arnarfell, hér á reiki er margur óhreinn andinn, úr því fer að skyggja á jökulsvell; Drottinn leiði drösulinn minn, drjúgur verður síðasti áfanginn. Drottinn leiði drösulinn minn, drjúgur verður síðasti áfanginn. Þey þey! þey þey! þaut í holti tófa, þurran vill hún blóði væta góm, eða líka einhver var að hóa undarlega digrum karlaróm; útilegumenn í Ódáðahraun eru kannske að smala fé á laun. útilegumenn í Ódáðahraun eru kannske að smala fé á laun. Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn, rökkrið er að síða á Herðubreið, álfadrottning er að beisla gandinn, ekki er gott að verða á hennar leið; vænsta klárinn vildi ég gefa til að vera kominn ofan í Kiðagil vænsta klárinn vildi ég gefa til að vera kominn ofan í Kiðagil